Það er aðallega tvennt sem vakti áhuga minn í þessari frétt. Annars vegar að það kemur hvergi fram hverjir framkvæmdu þessa rannsókn og hins vegar koma niðurstöðurnar mér ekki á óvart, ég kaupi hana, alla vega frekar en sykurinn.
Hafið þið tekið eftir því til dæmis hvað það er mikill sykur í kökum frá flestum íslenskum bakaríum? Og neytandinn þegir þunnum hljóðum. Af hverju er það?
Prófið brauðið og kökurnar frá Brauðhúsinu í Grímsbæ. Lífrænt hráefni notað, brauðið bragðgott og sykurinn í kökunum í algjöru lágmarki.
Með því að draga úr sykurneyslunni finn ég meira og betra bragð af matnum. Mæli eindregið með því. Kostirnir við að draga úr sykurneyslunni eru auðvitað mun fleiri sem óþarfi er að fara hérna inn á.
![]() |
Sykurinn verri en kókaín? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | 31.8.2007 | 07:05 (breytt 1.9.2007 kl. 10:52) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Var að horfa á dollarana hrannast upp á http://www.nationalpriorities.org/Cost-of-War/Cost-of-War-3.html sem sýnir stríðskostnað Bandaríkjanna í Írak.
Samkvæmt mínum mælingum eru þetta tæpir 200 þús. dollarar á mínútu eða um 12 milljónir í ísl. kr (dollarinn á 64 kr.). Þetta gera 770 milljónir kr. á klst. og rúmlega 18,4 milljarðar á dag.
Nú eru Bandaríkjamenn u.þ.b. þúsund sinnum fleiri en við Íslendingar þannig að ef Ísland myndi leggja jafn mikið fram á hvern Íslending og Bandaríkjamenn gera á hvern íbúa þeirra (þ.e. ef þessar tölur eiga við um útgjöld Bandaríkjanna eingöngu, auðvitað eru fleiri sem henda peningum í þetta og aðrir sem tapa peningum og mannslífum, s.s. Írakar) þá væru það um 18,4 milljónir kr. sem Ísland myndi borga á dag eða 6,7 milljarðar á ári. Það eru rúmlega 60 kr. á hvern Íslending á dag sem gera um 22 þús. kr. á ári.
![]() |
Bush sagður ætla óska eftir 50 milljarða dala aukafjárveitingu vegna Íraksstríðsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 30.8.2007 | 00:19 (breytt kl. 01:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Horfði á Farenheit 9/11 í annað sinn í gær. Tók hana í vikuleigu hjá borgarbókasafninu. Fullt af góðum myndum þarna og ég borga ekki krónu fyrir, nema ég skili of seint (2ja daga leiga, nema á fræðslumyndum eins og þessari sem maður getur haft í viku). Maður getur reyndar ekki verið alveg 100% á því að fá sömu mynd og stendur á hulstrinu. Tók t.d. um daginn myndina Great Moments of The 20th Century. Áttaði mig á því þegar heim kom að þessi heimildarmynd skiptist í 3 DVD diska (í 3 hulstrum) og ég fékk sem betur fer fyrsta hlutann, 1900-1945, þrátt fyrir að utan á hulstrinu stæði 1970-2000. Lét safnið vita af þessu þegar ég skilaði disknum og tók fyrsta hlutann í von um að um annan hluta væri að ræða en því miður var þetta fyrsti hlutinn... aftur.
E-a hluta vegna finnst mér fróðlegt að lesa um og horfa á efni um 9/11 conceptið. Kannski vegna þess að ég leyfi mér að viðurkenna að ég er ekki sammála stefnu USA í mörgum málum og var aldrei sáttur við hersetuna þeirra hér á landi. Verð þó að taka fram að hryðjuverk eru aldrei ásættanleg, frekar en stríð. USA og fleiri herríki gera mikinn greinarmun á stríði og hryðjuverkum, það er í lagi að bomba á saklausa borgara ef þú lætur vita á undan: við erum að fara að bomba á ykkur. Hins vegar ef þú lætur ekki vita á undan þá stundarðu hryðjuverk. Ætli þetta séu ekki alþjóðlegar skilgreiningar og ég of tæpur til að skilja
Kvikmyndir | 29.8.2007 | 14:49 (breytt kl. 14:57) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
![]() |
Stórsigur hjá Liverpool |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | 28.8.2007 | 21:30 (breytt kl. 21:37) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fór í gær á námskeið sem bar heitið Sigursæl sjálfsmynd á vegum Stjórnunarfélags Íslands. Efnið var var byggt upp á því sem kennt er í The Secret-myndinni, þ.e. hvernig líf okkar og örlög er hrein og klár spegilmynd sjálfsvitundar okkar.
Við unnum nokkur verkefni á námskeiðinu, meðal annars að setja fram það sem við virkilega viljum (vv) og ræða það svo við e-n á námskeiðinu. Rambaði á sæta, feimna stúlku og sagði henni hvað ég vv. Ég sagði henni að efst á blaði væri að finna mér maka og svo romsaði ég út úr mér 5 öðrum atriðum sem ég vv. Hún dró sig enn meira inn í skelina með pappírana límda upp við líkamann svo ég sæi örugglega ekki hvað hún vv.
Fór svo í mitt sæti, mjög stoltur að hafa opinberað það sem ég vv. Fór þá að hugsa (loksins, fattarinn hjá mér er nefnilega stundum laust plöggaður); hún hélt örugglega að ég væri að reyna við sig. Hvað annað gæti hún hafa verið að hugsa um þegar ég potaði því að henni að mitt mikilvægasta verkefni væri að finna mér lífsförunaut
Bloggar | 26.8.2007 | 13:22 (breytt 28.8.2007 kl. 01:15) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)

![]() |
Aron Pálmi kominn til landsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 26.8.2007 | 11:41 (breytt kl. 21:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég þarf að fórna opnum degi í Skaftholti á morgun því ég er að fara á námskeið frá morgni til kvölds. Það er sko leyndó hvað þetta námskeið fjallar um og giskið nú
Svo stefndi ég stíft á að fara í fertugsafmæli Björns Sigurjóns og farinn að hlakka til. Síðan tek ég upp á því að bóka mig á fótboltaleik í landi englanna akkúrat sömu helgi. Hvað er til ráða?
Bloggar | 24.8.2007 | 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hef ekki leitt hugann að þessu hingað til En þetta nálgast samt eins og óð fluga. Maður fer þá teinréttur í ellina; alla vega í huganum hvað sem líkamlegu atgervi líður.
En spáið í því hvað þetta er mikið feimnismál. Af hverju ætli að það sé? Þetta er jú mannlegt... að hafa kynhvöt. Kynlíf getur verið eitt það yndislegasta í þessum heimi sé það stundað með vilja þeirra sem að standa. Held að bæling á kynhvötinni og umræðu um kynlíf leiði meðal annars af sér kynferðislega misnotkun þar sem fórnarlömbin eru helst þeir sem geta ekki varið sig.
![]() |
Kynlífslöngun spyr ekki um aldur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 23.8.2007 | 15:09 (breytt kl. 17:22) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Horfði á Elvis troða upp á sviði árið 1970 á TCM (e-a hluta vegna er TCM óruglað hjá mér núna). Ég hef vanmetið hann hingað til. Ég þekkti um 90% af lögunum. Þið hefðuð átt að sjá hann, kyssa a.m.k. 50 stúlkur í miðjum lögum. Svo fór hann labbandi um salinn að kyssa fleiri stúlkur. Elvis hafði það og hefur, því hann lifir enn, kóngurinn.
Hef gaman af því að spyrja Tinnu frænku hvað klukkan sé; hún er númer tíu... nei, nei, nei... hún, hún er númer tvö Hafði ekki litið á klukkuna út frá þessu sjónarhorni hingað til; hún er ekkert nema talnaröð. Börn fá mann oft til að hugsa öðruvísi og draga mann út úr þessum kassa sem maður lifir og hrærist í dags daglega. Takk fyrir það Tinna.
Hitaði upp fyrir Reykjavíkurlabbið á laugardaginn með því að labba í Sport Cafe að sækja bílinn því ég fór þangað í gær að horfa á fótbolta og drakk bjór. Er reyndar á sýklalyfjakúr þannig að ég á að láta allt afengi vera en ég vildi sleppa smá af mér beislinu, á miðvikudegi kl. 13:30 í miðju Grafarholti.
Bloggar | 16.8.2007 | 23:33 (breytt 18.8.2007 kl. 23:04) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Af hverju ljóð?
Af hverju ekki
að segja hlutina
eins og þeir eru
með berum orðum?
Af hverju tvíræðni?
Af hverju grimmd?
Hvað vekur hún upp?
Nánd?
Dýpt?
Nei, spurningar.
Dýpt er fráhrindandi
í nútíma samfélagi.
Ljóð eru torskilin
nema með dýpt lesandans.
Hversu djúpur
er Sverrir Stormsker?
Hann er tvíræðinn,
leikur sér að tungumálinu,
til skemmtunar;
ekki til dýptar.
Eða hvað?
Ljóð | 15.8.2007 | 17:39 (breytt 16.8.2007 kl. 10:44) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- 5.6.2008 Tilviljanir?
- 12.5.2008 Eftir 5 mánaða bloggpásu
- 15.12.2007 Vísir til að draga úr líkum, kannski
- 14.12.2007 Viðskiptabann á USA
- 13.12.2007 Stórfrétt
Færsluflokkar
Bloggvinir
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar