Færsluflokkur: Enski boltinn

Eftir 5 mánaða bloggpásu

Jæja, þá er útséð með markafjölda Torres á þessari leiktíð, 33 kvikindi og hvert öðru glæsilegra, þar af 24 í deildinni. Er hægt að fara fram á meira á sinni fyrstu leiktíð á Englandi? Held ekki, enda sló hann markamet Ruud Van Nistelrooy, sem er eigi svo handónýtur.

Óska United mönnum og konum til hamingju með titilinn, þeir eru vel að þessum titli komnir enda með einn magnaðasta framkvæmdastjóra sem sögur fara af. Verður gaman að fylgjast með lokaleik meistaradeildarinnar.

Nú er aldrei að vita nema að ég laumi hérna inn eins og einu bloggi fyrir jólin, nægur tími til stefnu Tounge


mbl.is Torres setti met en Ronaldo markakóngur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er ég kominn

Þá er bulluferðin búin

ég orðinn lúinn

2 stig í súginn 

ég peningum rúinn.

Þetta er allt satt nema að ég er ekki lengur lúinn enda búinn að hvíla mig vel eftir heimferðina... og svo er ég ekkert peningum rúinn (þrátt fyrir feita reikninga sem biðu mín heima)... nú stigin 2, Liverpool átti ekkert meira skilið en eitt.

Ferðin byrjaði ekkert allt of vel því þegar við komum til Manchester fylgdi enginn farangur með okkur Stjána. Ástæðuna mátti rekja til þess að við fengum sæti á Saga Class (sem ég hef aldrei orðið svo frægur fyrir að prófa áður).  Sætin fengum við á síðustu stundu en farangurinn fékk hins vegar engin sæti og því fór sem fór. Við Stjáni vorum því orðnir rónalegir og illa lyktandi á sunnudagskvöldið þegar töskurnar komu loks. Við gistum á Victoria & Albert hótelinu sem er flott gamaldags hótel (í 150 ára húsi sem er fyrrum vörugeymsla).

Við tókum svo laugardaginn snemma og fórum í United Megastore þar sem hægt var að kaupa allskyns varning (og drasl) og þar var vart þverfótað fyrir kaupglöðum aðdáendum sem ég þoldi illa svo ég fór rakleiðis út og beið þar eftir feðgunum Herði og Héðni. Við þrír fórum svo í  tjald aðdáenda (fan zone) þar sem hægt var að spila fótbolta tölvuleiki, fara í pílukast, horfa á beina útsendingu frá vellinum (viðtöl) eða þætti um United, kaupa og drekka Budwiser svo fátt eitt sé nefnt.

Vorum sestir í sætin okkar rúmlega klst. fyrir leik. Með aðgöngumiðanum fylgdi tilkynning þar sem kom fram að ekki ætti að sýna andstæðingum United stuðning. Þegar Wigan liðið var kynnt í hátalarakerfinu púuðu 70 þúsund United aðdáendur ákaft (þvílíkur barnaskapur og óþroski). Fyrir leikinn var hávær tónlist spiluð og hugtakið múgæsing var mér efst í huga.

Markalaust var í fyrri hálfleik og ég spurði sessunaut minn hvaðan hann væri. Noregur var svarið og ég sagði honum sem stoltur Norðurlandabúi að ég kæmi frá Íslandi. Honum þótti það nú lítið merkilegt ekki síst þegar mér varð á að tilkynna honum að ég væri Liverpool aðdáandi og við félagarnir ætluðum að fara á Anfield á morgun. Veit ekki hvað ég var að spá enda fékk ég illt augnaráð í kjölfarið. United yfirspilaði svo Wigan liðið í seinni hálfleik og sigrðaði verðskuldað 4-0.

Þá var ekkert annað að gera en að samfagna með feðgunum og býða spenntur eftir Anfield, Mekka fótboltans. Steve nokkur sótti okkur á mánudagsmorgninum og við vorum mættir snemma á leikinn, eins og daginn áður og fengum sæti gegnt The Kop, frægustu áhorfendastúku á þessum hnetti. Magnað hvað völlurinn var lítill, allt minna í sniðum en ég hafði gert mér í hugarlund eftir að hafa horft á aðeins fleiri en einn leik af Anfield í kassanum.

Svo tók við hápunkturinn í ferðinni. You’ll never walk alone var kyrjað sem aldei fyrr; þvílík stemning og ég söng hástöfum um leið og ég tók stemninguna upp á mynd og hljóð. Fór svo álíka langt niður og ég fór upp þegar heim kom og ég hlustaði á hvað ég er hræðilegur söngvari. Held þessari upptöku bara fyrir mig til að minna mig á að stilla á mute næst þegar ég ætla að syngja hástöfum.

Liverpool spilaði ágætlega í fyrri hálfleik, fengu þrjú dauðafæri og skoruðu eitt mark en fengu á sig eitt rétt fyrir leikslok. Í upphafi seinni hálfleiks fengu mínir menn annað mark á sig en náðu að bjarga sér fyrir horn þegar táningurinn Torres jafnaði á annarri mínútu uppbótartímans.

Við fjórir vorum sammála um að stemningin hafi verið betri á Anfield enda mikið sungið og trallað, einkum í fyrri hálfleik. Leikirnir tveir buðu upp á átta mörk og eftir situr minnisstæð ferð og gaman að hafa kynnst þessari hlið áhugamáls míns. Ætla að bíða með að fara á Stanley Park (nýja Liverpool völlinn) í nokkra tugi ára, er ekki þessi týpíska bulla (eins og ég vissi reyndar vel fyrir ferðina).

Tókum lest til London á mánudeginum, kíktum á Buckinham Palace, Big Ben og fleiri merkar byggingar. Við Stjáni fengum flugmiða hálftíma fyrir flug, að þessu sinni á almennu farrými, eins og almúginn. Draumurinn um betri tíð með blóm í haga til handa Liverpool sótti svo á mig þegar heim kom, eftir stutt ævintýri í landi englanna.


Nú er ég farinn

Nú er ég farinn

meinilla farinn

og búinn að vera

þverrandi þol

ekkert hægt að gera...  

nema skella sér til Manchester og Liverpool; á Old Trafford og Anfield. Ekki nema tæpir sex tímar í flug og tveir dagar í Anfield. Júhúúúú W00t

Stína fína bauð mér í fertugsafmælið sitt í kvöld og svo á ég boð í fertugsafmæli Björns á morgun og ég vel mér akkúrat þessa helgi til að hverfa úr landi. Þá er ekkert annað að gera en að óska Birni og Stínu til hamingju með þennan áfanga með ósk um glimmrandi gleði í veislunni. Ég nálgast ykkur óðum í aldri og verð með ykkur í anda þó ég komist ekki í veislurnar Wink


Ömurleg spilamennska hjá Liverpool

Liverpool spilaði á heimavelli á móti liði sem pakkaði í vörn, líkt og íslenska landsliðið gerir gjarnan. Liverpool menn voru afkaplega staðir, lítil hreyfing á liðinu. Af hverju kom Torres ekki fyrr inn á? Tek það samt ekki af Birmingham að þeir vörðust vel, mjög vel.


mbl.is Stórsigur Arsenal - markalaust hjá Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölskiptakerfi Benitez

Enn kemur í ljós hvað landsleikjahlé getur komið illa niður á félagsliðum. Þarna reynir á breidd liðanna og Benitez stendur þar ágætlega auk þess sem liðsmenn eru vanir því að breytingar séu gerðar á liðinu milli leikja. En hver borgar brúsann í svona meiðslamálum þegar leikmenn spila með landsliðum, þá meina ég peningalega séð?
mbl.is Tveir leikmenn Liverpool fótbrotnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Toppurinn

Vá hvað ég svaf vel í nótt enda mínir menn í skýjunum W00t Hef ekki sofið svona vel í margar vikur, reyndar er hægt að færa rök fyrir því að ég hafi ekki sofið svona vel síðan fyrir 5 árum þegar Liverpool var síðast á toppi deildarinnar; byrjaði þá glimmrandi vel, vann 9 af 12 fyrstu leikjunum og gerði 3 jafntefli. Þar af unnu þeir 7 leiki í röð í deildinni. Því miður kom risa slag í bakið í framhaldinu og liðið endaði í 5. sæti með 64 stig. Var þetta ekki tímabilið sem Houllier veiktist? Eða var það á tímabilinu á undan?

Owen var með 28 mörk á því tímabili, þar af 19 í deildinni. Sé alveg fyrir mér að Torres komi með annað eins afrek í vetur. Byrjar alla vega vel. Hann er með góða tækni, yfirsjón, góð hlaup, hraður og líkamlega sterkur. Vantar enn smá upp á að Kuyt og Voronin læri betur inn á hann og Torres á þá.


Unun

Þvílík forréttindi að halda með þessu liði. Kuyt, Lucas, Mascherano og 8 aðrir snillingar léku sér á Anfield í dag. Spái tveimur titlum í hús í vor. Hvað mun stoppa þessa hraðlest?

mbl.is Stórsigur hjá Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannast einhver við þetta?

Í símanum hljómar misgáfuð lög og reglulega mætir hljómfögur dama og segir „Í augnablikinu eru allir þjónustufulltrúar uppteknir. Við bendum á að hægt er að ganga frá greiðslu áskriftar í verslunum Vodafone, afgreiðslu Mömmu Krókhálsi, Skífunni Laugarvegi eða á netinu. Slóðin er stod2.is og syn.is.“

 

Sýn2 datt út í gær eftir að ég skilaði 365 myndlyklinum. Virtist sem ég hafi verið misskilinn. Ég var ekki að segja upp áskriftinni heldur að skila myndlyklinum því ég næ Sýn2 í gegnum myndlykil frá samkeppnisaðilanum.

 

Búinn að bíða eftir þjónustufulltrúa núna í 3 korter og er enn að bíða...


Er að sjá fyrir endann á sýninni

Jæja, nú er ég kominn með nýjan afruglara og búinn að skila þeim gamla til að ná leiknum um Samfélagsskjöldinn í dag. Beið með að tengja þann nýja þar til þau hjá 365 opnuðu fyrir Sýn2 sem var víst í gær.

Ég tengdi og tengdi og er enn að tengja en engin Sýn2 í mínu sjónvarpi. Beið í símanum í 15 mín eftir þjónustufulltrúa fyrir mat án þess að ná sambandi. Eftir matinn beið ég í 45 mín og þá loksins, loksins gerðist eitthvað og dama mætti í símann að svara langþyrstum fótboltaáhugamanni. Fórum yfir stöðvarnar sem ruglarinn gaf upp (bara tíðnisvið, ekki stöðvar). Niðurstaðan: Ég er ekki með örbylgjuloftnet en næ sjónvarpinu með breiðbandinu.

Möguleikarnir: Fá mér örbylgjuloftnet eða afruglara hjá Símanum. Já, auðvitað. Sýn2 næst ekki í gegnum breiðbandið með afruglara frá 365. Þetta átti ég auðvitað að vita.

Nú er að húrra kl. 10 í Kringluna að sækja aftur afruglara hjá Símanum og borga 563 kr. á mánuði í leigugjald til að horfa á sjónvarpsefni hjá samkeppnisaðilanum. Þarna bætast 5630 kr. yfir veturinn og enski boltinn þennan veturinn því kominn í 4733 kr. á mánuði í stað 4170 kr. Angry


Rétt sýn

Fékk ábendingu hér á blogginu við síðustu færslu að ég gæti fengið mér Sýn og lækkað við það kostnað á Sýn2. Ég hafði þá samband við áskriftardeild Sýnar og það stendur heima.

Geri maður heilsárssamning að áskrift að Sýn2 borgar maður 4171 kr. á mánuði í stað 4390 kr. Það gerir 50.022 kr. á ári.

Taki maður Sýn með í heilsársáskrift þá gerir það 7112 kr. á mánuði (8890 kr. án heilsárssamnings). Það gerir 85.344 kr. á ári.

Heilsársbinding enska boltans á Skjásporti kostuðu mig 28.092 kr. Mismunurinn eru 57.252 kr. á ári eða 4771 á mánuði milli þess að vera með Skjásport og Sýn+Sýn2. Vissulega miklu meira af sporti á Sýnarrásunum en ég er bara að sækjast eftir enska boltanum og fyrir það þarf ég að greiða 1830 kr. meira á mánuði. Allt blaður íþróttafréttamanna mætti koma frá Englandi. Þeir eru ekkert síðri án þess að ég vilji gera lítið úr íþróattafréttamönnum hjá 365.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband