Horfði á Laugardagslögin í gærkvöldi og hafði nokkuð gaman af. Það sem stóð upp úr var hinn síungi Leifur Eiríksson. Nafnið getur ekki verið mikið þjóðlegra og hann hefur lifað tíund af tíma kristni á Íslandi.
Þegar hann var spurður hvort hann ætti ipod svaraði hann: Ég sendi honum sjöuna mína og átti við það þegar hann kaus Magna í Rockstar. Svo samdi hann og flutti ljóð sem er spegilmynd um ofurgræðgina sem gengur nú yfir á þessu landi:
Punktur is, punktur is
það er gaman að hækka og hækka.
Punktur is, punktur is
finna sig vera að stækka og stækka
þeir stóru mega sín mest
og ætla að eignast sem flest.
Punktur is, punktur is
eignagleðinnar njóta sem mest.
Punktur is, punktur is
einkaþotan er markmiðið næst.
Punktur is, punktur is
því þá svífur andinn sko hæst.
Best að enda þennan pistil á svari Leifs þegar hann var spurður hvort hann fari oft til útlanda:
Eg er kominn upp á það
allra þakkarverðast
að sitja kyrr á sama stað
en samt að vera að ferðast.
(Jónas Hallgrímsson)
Flokkur: Bloggar | 25.11.2007 | 16:48 (breytt kl. 16:48) | Facebook
Nýjustu færslur
- 5.6.2008 Tilviljanir?
- 12.5.2008 Eftir 5 mánaða bloggpásu
- 15.12.2007 Vísir til að draga úr líkum, kannski
- 14.12.2007 Viðskiptabann á USA
- 13.12.2007 Stórfrétt
Færsluflokkar
Bloggvinir
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.