Ishmael Beah

Ishmael BeahVar svo heppinn að komast á opinn fund Ishmael Beah í hádeginu (og komast yfirhöfuð fyrir). Lagði nokkuð tímanlega af stað en umferðarteppa við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar gerði það að verkum að ég steig fæti inn í Iðnó kl. 12:08 og fyrirlesturinn átti að byrja kl. 12:10.

Öll borð voru upptekin en ég náði að smeygja mér inn í salinn og planta mér upp við vegg. Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, kynnti Ishmael og hvernig UNICEF tengist honum, manni sem lítur út fyrir að vera amerískur rappari í anda Snoop Dog nema í stað fléttanna er eins og Beah sé nýkominn úr 1200 snúninga þurrkara, allt upp í loft. Flottur karakter.

Beah sagði frá hræðilegri lífsreynslu sinni í heimalandi sínu, Afríkuríkinu Síerra Leóne. Hvernig hann, aðeins 13 ára gamall, var tekinn í her stjórnvalda og þvingaður inn í raunveruleika sem er svo fjarri þeim raunveruleika sem við búum við hér á Íslandi. Hann átti ekki annarra úrkosta völ en að verða útúrdópað, heilaþvegið morðtól stjórnvalda. Dópið deyfði hann öllum tilfinningum; að myrða varð daglegt brauð fyrir honum. Að horfast í í augu barns sem lifir og hrærist í þessum heimi er eins og að horfa í endalaust myrkur, sagði Beah. Móðir hans og tveir bræður voru drepin í stíðinu; herinn var eftir það hans fjölskylda.

Fyrir tilstuðlan Barnahjálpar Sameinuðu Þjóðanna, UNICEF, tókst að bjarga Beah frá glötun. Á þeim tíma sem hann var færður undir hendur UNICEF hafði hann engan hug á að breyta líferni sínu. Það þurfti sterk bein og mikla aðstoð til að fara inn á réttar brautir. Það tókst og hingað var hann kominn til að opna augu og eyru Vesturlandabúa, sem búa í vernduðu umhverfi frá því helvíti sem 300.000 börn lifa og hrærast í dags daglega í heiminum, búin vopnum til að verja sig, drepa „óvininn“ og fá útrás fyrir hatrinu sem búið er að festa svo kyrfilega í þeirra saklausa huga.

Beah sagði það markmið margra barna, á þeim slóðum sem hann ólst upp, að komast til valda því með valdinu fylgja möguleikar á spillingu, með spillingunni fylgja möguleikar á efnislegum gæðum þannig að út frá þeim forsendum er vald eftirsóknarvert. Lái þeim hver sem vill. Þau vita einfaldlega ekki betur; fátækt knýr þau síðar til spillingaverka. Er ekki viss um að sú litla spilling sem fyrirfinnst hér á landi sé af sömu rótum.

Að fá tækifæri til að hlýða á frásögn Beah eru ekkert annað en forréttindi. Ég ber mikla virðingu fyrir honum. Keypti bókina sem hann skrifaði, „Um langan veg - Frásögn herdrengs“. Fékk meira að segja eiginhandaráritun frá þessari 26 ára hetju. Hvet alla til að lesa þessa bók; þó ég sé rétt byrjaður á henni, er ég nokkuð viss um að hún sé eftirminnileg og þroskandi lesning.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Það er varla smekklegt að segja að lýsingin hjá þér sé góð, t.d. á 1.200 snúninga hárgreiðslunni, en hún er samt smellin. En ég sem sagt hafði ekki úthaldið þitt í dag, ég kom kl. 12:10 og hraktist um í anddyrinu í 10 mínútur áður en ég gafst upp. Þá heyrðist heldur EKKI NEITT vegna þess að í anddyrinu gleymdi fólk að það væri komið til að hlusta. Fleiri hurfu frá. Ég treysti því að þú segir frá bókinni ... líka eftir að þú klárar hana.

Berglind Steinsdóttir, 24.9.2007 kl. 22:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband