Allsherjargoðinn í Elliðadalnum

Jæja, kominn tími á nýja bloggfærslu. Hef verið á kafi í Önnum að undanförnu þannig að lítill tími hefur gefist til að tjá mig hérna á meðan.

Var í brúðkaupi í gær sem haldið var í Félagsheimili Orkuveitunnar í Elliðadalnum. Steinunn og Stefán voru gefin saman af Allsherjargoðanum í regnúðanum við Elliðaárdalnum Mikill sjarmi yfir þessar athöfn.

Gjafir voru afþakkaðar en hins vegar komu gestir með söngolíu og e-ð matarkyns með sér. Ég kom með líter af Íslensku brennivíni og harðfisk. Eftir matinn lét ég, eða öllu heldur Eiríkur Ágúst, flöskuna (þessa vinstri grænu eins og hann kallaði hana) og harðfiskinn ganga einn hring um borðin. Harðfiskurinn nánast kláraðist meðan 90% af söngolíunni kom til baka, sennilega vegna þess að þetta var lélegur árgangur.

IQ-vísitala okkar sjö sem sátum við sama borðið (Lonní, Baldur, Eiríkur, Oddný, Valdimar og Rósmarý) var sjálfsagt vel undir meðal greindarvísitölu þeirra 65 gesta sem voru í veislunni. Ekki vegna þess að sessunautar mínir séu eitthvað tæpir heldur vegna þess að í veislunni var ekki þverfótað fyrir sigurvegurum í Gettu Betur í gamla daga (Sveinn Guðmarsson, Ármann og Sverrir Jakobssynir, fjölmargir MR-sigurvegarar sem ég þekki bara í sjón). Þeir sem ekki höfðu sigrað í Gettu Betur voru pólitíkusar og/eða hernaðarandstæðingar s.s. eins og Katrín Jakobsdóttir, Svandís Svavarsdóttir, Auður Lilja formaður Ungliðahreyfingar Vg, Paul Nikolov og Sigurður Flosason. Fullt af skemmtilegum ræðum voru haldnar auk þess sem Svavar Knútur trúbador flutti nokkur lög. Þrælgóður performer þar á ferð. Svo endaði þetta á að nokkrir strákar (í hljómsveit sem ég man ekki hvað heitir) spiluðu fyrir dansi. Hafi brúðkaupið fyrir norðan verið frumlegt þá sló þetta öllu við. Fjörugt, frumlegt og fumlaust.

Innilega til hamingju með heitbindinguna Steinunn og Stefán og kærar þakkir fyrir frábæran dag og kvöld.

Um tvöleytið fórum við sjö með leigubíl niður í bæ. Byrjuðum á Boston og færðum okkur svo á B5. Verst hvað ég þekkti fáa þarna og var auk þess að leka niður af þreytu. Beið eftir leigubíl í hálftíma í röð við Lækargötuna og var kominn heim um kl. 6. Sofnaði yfir leik Wigan og Liverpool sem ég hafði tekið upp í gærdag.

Dagurinn í dag hefur farið í þynnku, göngutúr og sjónvarpsgláp. Allt sem ég var búinn að reikna með og undirbúa mig fyrir. Svona dagar eiga að vera frídagar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk sömuleiðis. Þetta var frábær dagur

Steinunn Þóra (IP-tala skráð) 2.10.2007 kl. 20:53

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Svavar, ég þori varla að segja þetta ... en hverjar eru þessar Önnur (sjá fyrstu línu)? Að því sögðu verð ég að bæta við að ég bráðöfunda þig af öllu þessu gáfufólki sem þú umgengst. Það er svo langt síðan ég sá Ármann að ég er ekki einu sinni viss um að hann noti sama trefilinn. Eða húfuna góðu sem hann neitaði að lána vinkonu minni í svellköldum bílnum.

Ég heyri að ég er farin að delera ... þrátt fyrir að hafa hlustað á næstum allar ræður þingsins í kvöld. Skrifaðu meira.

Berglind Steinsdóttir, 3.10.2007 kl. 00:29

3 Smámynd: Svavar Sigurður Guðfinnsson

Já, mér brá svolítið að sjá alla þessa gáfumenn og -konur. Mér leið eins og í minnihlutahópi  En virkilega gaman að hitta svona marga sem eru á svipaðri línu og ég í ýmsum málefnum samfélagsins. Voru þið Ármann saman í íslensku í HÍ?

Eigum við ekki bara að segja að ég hafi óvart ýtt á shift takkann þegar Önnurnar helltust yfir mig

Svavar Sigurður Guðfinnsson, 3.10.2007 kl. 14:16

4 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Já neinei, við Ármann ... bíddu nú við, ég held að við séum aðallega úr sama hverfi og bæði fádæma málgefin. Og sjálfbirgingsleg. En svo kenndi ég honum allt sem hann kann í íslensku á göngunum í Árnagarði, humm hmmm. Ég rakst reyndar á hann í gær eftir óralangt hlé og sá að hann er með rauðan trefil.

Berglind Steinsdóttir, 4.10.2007 kl. 21:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband